Karl III Bretakonungur þakkar innilega fyrir allar þær kveðjur sem almenningur hefur sent honum eftir að hann greindist með krabbamein.
„Eins og allir þeir sem hafa greinst með krabbamein vita, þá eru slíkar góðar hugsanir ein mesta huggunin og hvatningin,“ sagði í yfirlýsingu frá Karli.
BBC greinir frá því að konungurinn dvelji nú í Sandringham-höll.
Krabbameinið greindist er hann fór í aðgerð vegna stækkunar á blöðruhálskirtli í janúar. Eðli krabbameinsins er óljóst en þó er búið að útiloka að um blöðruhálskrabbamein sé að ræða.
Í yfirlýsingu konungsins sagði að honum þætti einnig vænt um að greining hans hafi hjálpað í því að kynna starf hinna fjölmörgu stofnanna sem styðja við krabbameinssjúklinga í Bretlandi og víðar um heim fyrir almenningi.
Kamilla drottning og Vilhjálmur Bretaprins munu sinna skyldum Karls í óákveðinn tíma.
Kamilla sagði á fimmtudag að eiginmanni hennar þætti mjög vænt um öll þau bréf og skilaboð sem hann hefur fengið á síðustu dögum.
Þá hefur Vilhjálmur einnig þakkað fyrir skilaboð sem faðir hans og einnig eiginkona hans, Katrín, hafa fengið. Hún fór nýlega í aðgerð á kviðarholi og mun ekki koma fram opinberlega fyrr en í fyrsta lagi eftir páska.