Leikkonan Megan Fox og tónlistarmaðurinn Machine Gun Kelly slitu trúlofun sinni nýverið. Fox mælir með því að að einhleypar stelpur finni sér eitthvað að gera í sumar í staðinn fyrir að eyða orkunni í stráka.
„Bætið við ykkur þekkingu eða finnið ykkur áhugamál,“ sagði Fox í viðtali við E! þegar hún var spurð út í hvaða markmið einhleypar konur ættu að setja sér í sumar. „Og ekki eyða orkunni í stráka,“ bætti hún við. Mælti hún með því að konur einbeittu sér að sjálfum sér.
Fox hefur ekki viljað greina frá sambandsstöðu sinni þrátt fyrir að hún hafi greint frá því að þau væru ekki trúlofuð lengur.