Bandaríski leikarinn Dick Van Dyke, best þekktur fyrir hlutverk sitt í dans- og söngvamyndinni Mary Poppins frá árinu 1964, segist vonast til þess að ná að fagna 99 ára afmæli sínu sem er þann 13. desember næstkomandi.
Van Dyke ræddi stuttlega við götuljósmyndara í Malibú á mánudag, en leikarinn, sem virtist vera við góða heilsu, var á rölti ásamt aðstoðarmanni sínum.
Myndband af hittingnum birtist á vefsíðu Page Six á mánudag og vakti mikla lukku, en margir aðdáendur ástkæra leikarans hafa haft áhyggjur af heilsufari hans þar sem hann hætti með stuttum fyrirvara við að veita verðlaun á Emmy-verðlaunahátíðinni fyrr í mánuðinum.
Götuljósmyndarinn spurði leikarann meðal annars út í afmælisplönin og Van Dyke þurfti vart að hugsa sig um áður en hann svaraði kátur í bragði: „Ég vona bara að ég nái að fagna því.”
Van Dyke, sem hefur ávallt vakið athygli fyrir glaðlegt viðmót og vinsemd, skráði nafn sitt á spjöld sögubókanna í apríl þegar hann varð elsti leikari til þess að hljóta tilnefningu til Emmy-verðlaunanna. Hann hlaut tilnefningu fyrir gestahlutverk í bandarísku sápuóperunni Days of Our Lives.