Þjóðmálin
29. ágúst 2024
Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari er gestur Dagmála Morgunblaðsins í dag. Hann ræðir þar stöðu sem upp er komin hjá embætti ríkissaksóknara. Sigríður Á. Friðjónsdóttir hefur óskað eftir því við Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra að Helga Magnúsi verði leystur frá störfum tímabundið. Helgi trúir því að dómsmálaráðherra muni finna farsæla lausn og vísa þessu erindi til föðurhúsanna. Verði niðurstaðan önnur er hann tilbúinn að fara alla leið í þessu máli sem hann kallar réttlætismál.