Skrifstofa Frakklandsforseta, François Hollandes, segir ekkert hæft í fréttum um að hann muni síðar í dag greina formlega frá því að hann og Valérie Trierweiler séu skilin að skiptum.

Samkvæmt BBC fengust þær upplýsingar frá Elysee-höll að um rangan fréttaflutning væri að ræða en talsmaður forsetaembættisins segir í samtali við BBC að ekki verði gefin út nein tilkynning í dag af hálfu forsetans.
Þrátt fyrir þessa frétt BBC virðist sem þessar fregnir hafi ekki borist til frönsku fjölmiðlanna því á forsíðu Le Parisien er því haldið fram að þetta sé búið - sambandsslitin verði tilkynnt formlega síðar í dag.