Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna „rangfærslna í umfjöllun um breytingar á tekjuskattskerfinu á næsta ári og skattalækkun sem kynnt var í tengslum við fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2020“.

Fram kemur að kynnt hafi verið skattalækkun í tveimur áföngum í stað þriggja, 1. janúar 2020 og 1. janúar 2021, í tengslum við fjárlagafrumvarp næsta árs. „Mun ábati hennar skila sér strax til allra tekjutíunda. Þegar lækkunin er að fullu komin fram munu ráðstöfunartekjur heimilanna aukast um 21 ma.kr. á ári. Fyrir einstaklinga með tekjuskattsstofn í kringum 350 þúsund krónur þýðir það 125 þúsund króna skattalækkun á ári.“
Strax um næstu áramót komi til framkvæmda fyrri hluti skattkerfisbreytingarinnar. „Skattgreiðslur fólks með tekjur við fyrstu þrepamörkin munu lækka um 42 þúsund krónur á næsta ári. Þá hefur að sjálfsögðu verið tekið tillit til lækkunar persónuafsláttar sem beitt er í samspili við upptöku nýs lægsta þreps, til að beina þunga lækkunarinnar til þeirra sem eru um eða undir meðaltekjum.“
Bent er á að hækkun persónuafsláttar í stað nýs grunnþreps hafi ekki skilað meiri ávinningi til tekjulægstu hópanna. „Sú aðferð hefði þvert á móti skilað mun minni ávinningi til lágtekjuhópa og hefði auk þess skilað sömu krónutölu upp allan tekjustigann. Lækkun persónuafsláttar hefði þannig einungis í för með sér 5.800 kr. ávinning og hefði sá ávinningur farið upp allan tekjustigann. Hefði lækkun persónuafsláttar átt að skila 10 þ. kr. hærri ráðstöfunartekjum hefði slík breyting kostað ríflega 31 ma.kr.“
Þá verði samsköttun hjóna/sambúðarfólks, sem geri fólki kleift að samnýta persónuafslátt, áfram heimil í skattkerfinu. „Að auki er rétt að árétta að heimild til samnýtingar skattþrepa, sem innleidd var í skattkerfið 2010, verður einnig óbreytt í nýju skattkerfi. Það er því rangt sem haldið hefur verið fram að verið sé að hækka skatta um 3 ma. kr. Breytingar á skattkerfinu munu þvert á móti lækka skatta allra tekjutíunda og skila sem fyrr segir 21 ma.kr. í auknar ráðstöfunartekjur á ári til heimilanna.“
Uppfært 13:12
Fjármálaráðuneytið hefur sent frá sér leiðréttingu en í upphaflegri tilkynningu ráðuneytisins var talað um að „hefði lækkun persónuafsláttar átt að skila 10. þ. kr. lægri ráðstöfunartekjum“. Þarna á að standa „hærri“ og hefur það verið leiðrétt.