Margt var um manninn á opnun sýningar Áslaugar Írisar Katrínar Friðjónsdóttur í Gallerí Þulu á dögunum. Áslaug þykir ein af athyglisverðari listakonum í íslensku listalífi en hún er menntuð í New York. Verkin hennar eru óhlutbundin og óvenjuleg að því leyti að hún notar mikið steina í verkunum sínum.

Sýning Áslaugar í Gallerí Þulu heitir Opna og vísar titillinn bæði í sögnina að opna en líka í opnu eins og í opinni bók.
„Við vinnslu sýningarinnar gerðist það ítrekað að ég varð steinhissa á sjálfri mér því ég bjóst ekki við svona kraftmiklum verkum, en þau bókstaflega sprungu út fyrir framan mig eins og ég hafi opnað inn í eitthvað hólf innra með mér og þaðan komu þau. Mér leið eins og ég væri meira að eltast við þau og koma þeim í form,“ sagði Áslaug um sköpunarferlið í viðtali við Smartland fyrir skömmu en sýningin stendur til 23. desember.