Nú styttist í annan endann á janúar og dagarnir eru blessunarlega farnir að lengjast. Það þurfti ekki nema nokkra sólargeisla í byrjun vikunnar til að færa aukinn kraft og gleði í landann, enda eru það oft litlu hlutirnir sem gefa lífinu lit.

Það sama má segja þegar kemur að heimilinu, en það eru oftar en ekki smáatriðin sem gera gæfumuninn og skapa skemmtilega stemningu. Það er því tilvalið að nýta kraftinn frá sólargeislum vikunnar í að fríska upp á heimilið, en á óskalista vikunnar finnur þú tíu vel valda hluti sem hjálpa þér við það!
Þessi fallegi vasi eftir Anissu Kermiche er á óskalista margra fagurkera, enda einstakur og formfagur vasi sem fegrar hvaða rými sem er.
Þó svo dagarnir séu farnir að lengjast getum við enn búist við köldum tölum í veðurkortunum. Þá er fátt betra en að hella sér upp á gott te og að sjálfsögðu skemmir ekki að hella því úr svona fallegum tekatli!
Það er auðvelt að gefa baðherberginu ferskan blæ með þessum litríku handklæðum frá Naram.
Fagurfræði og notagildi mætast í þessum skemmtilega hægindastól frá Karup Design. Hann býður upp á þrjú form – hægindastóll með pullu fyrir fætur, dýnu þegar hann er tekinn í sundur eða háa sessu þegar hann er brotinn saman.
Notaleg motta getur breytt stemningunni úr því að vera köld yfir í að vera hlýleg og notaleg í hvaða rými sem er. Svo er extra notalegt að stíga niður á mjúka mottu á veturna þegar það er kuldi í manni!
Janúar er mánuður kertaljósa, enda fátt sem toppar það að kveikja á góðum ilmkertum í gulri viðvörun. Þessi ilmur er handgerður á Íslandi með grunntónum af melgresi, mosa, krækiberjalyngi og þangi.
Fallegur borðdúkur er ómissandi á öll heimili, en hör-áferðin á þessum fallega dúk skapar afar hlýlega stemningu og er tímalaust.
Ruslamálin voru á brennidepli árið 2023 þegar flokkunartunnum fjölgaði á heimilum. Ert þú búin að fresta ruslamálunum aðeins of lengi? Þá er tilvalið að nýta kraftinn frá sólargeislum vikunnar í að græja flokkunarmálin á heimilinu – til dæmis með þessari flottu tunnu frá House Doctor!
Málning getur gert kraftaverk fyrir rými! Ekki síður ef hún er með skemmtilegri áferð eins og kalkmálningin.
Fagurkerar virðast heillast meira að ákveðinni tegund af bókum en annarri – en það eru bækur sem eru með góðu innihaldi og eru fallegar. Þessi ætti því að hitta beint í mark!