Leikstjórinn og leikarinn, Sigurjón Kjartansson, frumsýndi kvikmynd sína, Fullt hús, í Laugarásbíói í gærkvöldi. Eiginkona hans, Halldóra Guðbjörg Jónsdóttir, var að sjálfsögðu með í för og sást það langar leiðir hvað þau voru ástfangin.

Um er að ræða grínmynd og skrifaði Sigurjón handrit myndarinnar ásamt því að leikstýra henni. Myndin er framleidd af Markelsbræðrum sem framleiddu Síðustu veiðiferðina og fleiri fyndnar íslenskar kvikmyndir.
„Í myndinni er fylgst með heimkomu heimsþekkts sellóleikara sem kemur heim eftir tuttugu ára sigurgöngu erlendis og það fer strax að syrta í álinn. Hann er ekki allur þar sem hann er séður og eitt leiðir af öðru,“ sagði Sigurjón í viðtali við Ásdísi Ásgeirsdóttur á Sunnudagsmogganum. Hilmir Snær Guðnason fer með aðalhlutverkið í myndinni en mætti ekki á frumsýninguna.