Vilhjálmur Bretaprins og Katrín Bretaprinsessa fagna 13 ára brúðkaupsafmæli sínu í dag. Þau sendu frá sér fallega mynd í tilefni dagsins. Myndin, sem hefur aldrei birst áður, sýnir hjónin skælbrosandi á brúðkaupsdaginn.

Vilhjálmur og Katrín gengu í heilagt hjónaband í Westminster-klaustri í Lundúnum þann 29. apríl árið 2011. Áætlað er að ríflega 300 milljónir manna hafi fylgst með athöfninni sem var sjónvarpað um allan heim.
Hjónin kynntust fyrst í St. Andrew háskólanum í Skotlandi. Þar voru þau fyrst einungis vinir og fluttu saman með öðrum vinum í íbúð árið 2002. Það er síðan árið 2004 sem samband þeirra varð opinbert, en þá sást Katrín með Vilhjálmi og fjölskyldu í skíðaferð í Sviss.
Vilhjálmur og Katrín eiga þrjú börn, Georg Alexander Lúðvík, Karlottu Elísabetu Díönu og Lúðvík Arthúr Karl.