„Ég var aldrei í þannig stöðu að ég væri að þéna einhvern pening,“ sagði lyftingakonan Eygló Fanndal Sturludóttir í Dagmálum.

Eygló, sem er 22 ára gömul, stefnir á að tryggja sér keppnisrétt á Ólympíuleikunum í París í sumar en hún varð Evrópumeistari unglinga í október árið 2022 í Albaníu og varð um leið fyrsti Íslendingurinn sem verður Evrópumeistari í lyftingum.
Eygló æfði crossfit áður en hún ákvað að snúa sér alfarið að ólympískum lyftingum árið 2020.
„Ég skil mjög vel að þeir íþróttamenn, sem eru með svakalega styrktaraðila í crossfit, séu ekki að skipta yfir í íþrótt þar sem eru engir styrktaraðilar,“ sagði Eygló.
„Það er enginn möguleika að þéna einhvern pening í ólympískum lyftingum,“ sagði Eygló meðal annars.
Viðtalið við Eygló í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.