Harry Bretaprins er staddur í Bretlandi til að fagna 10 ára afmæli Invictus-leikana. Mun hann þó ekki hitta föður sinn Karl konung sem kveðst of upptekinn til að hitta soninn.

Talsmaður prinsins segir það vera vegna fullrar dagskrár konungsins sem feðgarnir nái ekki saman að sinni.
„Hertoginn hefur auðvitað skilning á fullri dagskrá föður síns og margvíslegra skuldbindinga hans en vonast til að sjá hann fljótlega,“ sagði í yfirlýsingu frá talsmanni Harrys.
Samkvæmt fréttastofu BBC mun Vilhjálmur Bretaprins, bróðir Harry, ekki mæta á opnunarviðburð Invictus-leikanna í dag, en Harry stofnaði leikana árið 2014 til heiðurs hermanna sem hafa særst í átökum.
Síðasta heimsókn Harry til Bretlands var í febrúar á þessu ári er faðir hans greindist með krabbamein. Vakti það nokkra athygli að bræðurnir hittust ekki í heimsókninni þrátt fyrir veikindi föður þeirra en andað hefur köldu á milli þeirra um nokkurt skeið.
Harry hefur verið búsettur í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum ásamt eiginkonu sinni Meghan Markle og börnum þeirra tveimur, frá árinu 2020.