Bað um skilnað í færslu á Instagram

Stjörnur skilja | 19. júlí 2024

Bað um skilnað í færslu á Instagram

Sheikha Mahra bint Mohammed bin Rashid Al Maktoum, dóttir varaforseta og forsætisráðherra Sameinuðu arabísku furstadæmanna, kom eiginmanni sínum, Sheikh Mana bin Mohammed bin Rashid bin Mana Al Maktoum, að óvörum á þriðjudag þegar hún óskaði eftir hjónaskilnaði í færslu á samfélagsmiðlasíðunni Instagram.

Bað um skilnað í færslu á Instagram

Stjörnur skilja | 19. júlí 2024

Skjáskot/Instagram

Sheikha Mahra bint Mohammed bin Rashid Al Maktoum, dóttir varaforseta og forsætisráðherra Sameinuðu arabísku furstadæmanna, kom eiginmanni sínum, Sheikh Mana bin Mohammed bin Rashid bin Mana Al Maktoum, að óvörum á þriðjudag þegar hún óskaði eftir hjónaskilnaði í færslu á samfélagsmiðlasíðunni Instagram.

Sheikha Mahra bint Mohammed bin Rashid Al Maktoum, dóttir varaforseta og forsætisráðherra Sameinuðu arabísku furstadæmanna, kom eiginmanni sínum, Sheikh Mana bin Mohammed bin Rashid bin Mana Al Maktoum, að óvörum á þriðjudag þegar hún óskaði eftir hjónaskilnaði í færslu á samfélagsmiðlasíðunni Instagram.

Skilnaðarbeiðnin kemur aðeins tveimur mánuðum eftir fæðingu frumburðar þeirra. 

Í færslunni, sem er stutt og hnitmiðuð, ásakar Sheikha Mahra eiginmann sinn um ítrekuð framhjáhöld og segir hjónabandinu lokið. Hún hefur þegar eytt öllum myndum af eiginmanni sínum af Instagram-síðu sinni.

Sheikha Mahra og Sheikh Mana gengu í það heilaga í maí á síðasta ári. Hjónin héldu glæsilega veislu tæpum mánuði síðar í Dúbaí. 



mbl.is