Inga Tinna Sigurðardóttir forstjóri Dineout og Logi Geirsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handknattleik, svífa um á bleiku skýi þessa dagana.

Parið, sem tók á móti stúlkubarni þann 25. júlí síðastliðinn, gaf heiminum örlitla innsýn inn í fyrstu dagana með dóttur þess á Instagram nú á dögunum.
„Prinsessan er mætt og á einu augabragði 25.07.2024 stækkaði allt í okkar lífi. Fjölskyldan, tilgangurinn, hjartað og ástin. Gætum ekki verið hamingjusamari. Fyrsti andardrátturinn þinn tók okkar í burtu og það var eins og tíminn stæði í stað. Yndisleg stund sem við geymum í hjörtum okkar alla tíð,“ skrifuðu þau í sameiginlegri færslu á samfélagsmiðlinum.
Sérstaka athygli vakti mynd af gylltum glæsivagni, sem er af tegundinni Dolce Gold. Vagninn kostar 1.399 evrur eða því sem samsvarar 211.000 krónum og er því greinilegt að stúlkan muni ferðast með stæl um götur borgarinnar næstu mánuði.
Vagninn er vel útbúinn að öllu leyti og mun svo sannarlega vekja athygli enda ekki á hverjum degi sem að gullvagn rúllar um borgarstræti.