Jevgení Balitskí, ríkisstjóri Saporisjía-héraðsins eftir að Rússar hernumdu svæðið, segir eldinn sem braust út hjá Saporisjía-kjarnorkuverinu vera í kæliturni versins.

Fyrr í kvöld var greint frá því að eldur hefði komið upp við kjarnorkuverið en það er stærsta kjarnorkuverið í Evrópu og fara Rússar með yfirráð yfir því.
Balitskí segir eldinn hafa komið upp eftir sprengjuárás Úkraínumanna á Enerhodar-bæinn í Úkraínu.
Volodímir Selenskí Úkraínuforseti greindi frá brunanum á miðlinum X. Hann ritaði í færslu að rússneskir hermenn hefðu kveikt eldinn og sagði Rússa kúga Úkraínu og allan heiminn með því að fara með yfirráð yfir kjarnorkuverinu.
„Á meðan rússnesku hryðjuverkamennirnir halda yfirráðum yfir kjarnorkuverinu er ástandið þó ekki og getur ekki verið eðlilegt,“ ritar Selenskí.
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin hefur gefið út að engin merki hafi fundist um að geislun hafi aukist eða haft áhrif á öryggi kjarnorkumála. Í færslu á X segir að sérfræðingar stofnunarinnar hafi fengið ábendingu um meinta drónaárás á kæliturninn.
Myndband sem Selenskí birti á X sýnir svartan reyk koma frá kjarnorkuverinu.