Ólafur Darri slær í gegn í TikTok-dansi með dóttur sinni

TikTok | 23. ágúst 2024

Leikarinn Ólafur Darri Ólafsson hefur vakið þó nokkra athygli á samfélagsmiðlinum TikTok eftir að dóttir hans, Hekla Lind Ólafsdóttir, deildi myndbandi af danssporum feðginana. 

Ólafur Darri og dóttir hans, Hekla Lind, eru með alvöru …
Ólafur Darri og dóttir hans, Hekla Lind, eru með alvöru danstakta! Samsett mynd

Leikarinn Ólafur Darri Ólafsson hefur vakið þó nokkra athygli á samfélagsmiðlinum TikTok eftir að dóttir hans, Hekla Lind Ólafsdóttir, deildi myndbandi af danssporum feðginana. 

Leikarinn Ólafur Darri Ólafsson hefur vakið þó nokkra athygli á samfélagsmiðlinum TikTok eftir að dóttir hans, Hekla Lind Ólafsdóttir, deildi myndbandi af danssporum feðginana. 

Af ummælum að dæma þótti ungu kynslóðinni merkilegt að sjá leikarann gera TikTok-dans. Þá virtust margir hafa áhuga á að vita hvort Hekla hefði hitt stórleikarann Adam Sandler eða hvort hún væri með númerið hjá honum, en Ólafur Darri fór með hlutverk í kvikmyndinni Murder Mystery með Sandler og Jennifer Aniston í aðalhlutverki. 

„Ímyndaðu þér að eiga Ólaf Darra sem pabba,“ skrifaði einn notandi við myndbandið á meðan annar spurði: „Hefurðu hitt Elijah Wood? Kærastan mín elskar hann og pabbi þinn lék í mynd með honum.“

@heilungarrusina

Við erum so silly

♬ Bye
mbl.is