67 milljónir fylgdust með kappræðunum

67 milljónir fylgdust með kappræðunum

67 milljónir áhorfenda fylgdust með kappræðum forsetaframbjóðendanna Donalds Trumps, sem býður sig fram fyrir repúblikana, og Kamölu Harris, sem býður sig fram fyrir demókrata, á ABC-sjónvarpsstöðinni í fyrrinótt.

67 milljónir fylgdust með kappræðunum

Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024 | 12. september 2024

67 milljónir manna fylgdust með kappræðunum í sjónvarpinu.
67 milljónir manna fylgdust með kappræðunum í sjónvarpinu. AFP

67 milljónir áhorfenda fylgdust með kappræðum forsetaframbjóðendanna Donalds Trumps, sem býður sig fram fyrir repúblikana, og Kamölu Harris, sem býður sig fram fyrir demókrata, á ABC-sjónvarpsstöðinni í fyrrinótt.

67 milljónir áhorfenda fylgdust með kappræðum forsetaframbjóðendanna Donalds Trumps, sem býður sig fram fyrir repúblikana, og Kamölu Harris, sem býður sig fram fyrir demókrata, á ABC-sjónvarpsstöðinni í fyrrinótt.

Þetta sýna gögn frá greiningarfyrirtækinu Nilesen. Þessar tölur ná aðeins yfir þá sem fylgdust með kappræðunum í sjónvarpi en fjölmargir horfðu á kappræðurnar á YouTube eða á vefsíðum bandarískra fréttamiðla.

Í júní þegar Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, og Trump tókust á í eftirminnilegum kappræðum fylgdust 53 milljónir manna með útsendingunni á CNN.

Áhorfið í þessari viku náði þó ekki að toppa síðasta áhorfsmet sem var slegið árið 2016 þegar 84 milljónir fylgdust með kappræðum Hillary Clintons og Trumps.

mbl.is