Mary Danadrottning tjáði sig um líðan tengdamóður sinnar, Margrétar Þórhildar Danadrottningu sem féll í Friðriksborgarhöll í síðustu viku.

Hún var útskrifuð af Ríkissjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn fyrir helgi en hún hafði brotnað á vinstri hendi auk þess sem hálsliðir hennar urðu fyrir hnjaski. Drottningin mun ganga með hálskraga næstu mánuði.
Danska ríkisútvarpið greindi frá.
„Miðað við aðstæður hefur hún það mjög gott. Ég hef fengið tækifæri til að heimsækja hana nokkrum sinnum eftir að hún kom heim,“ sagði Mary í svari við spurningu danskra fjölmiðla um líðan tengdamóður sinnar.
„Hún er mega töff.“
Spurð hvort Margrét Þórhildur geti haldið góða skapinu á lofti þrátt fyrir fallið kímir Mary og svarar játandi.