Vegagerðin varar við því að grjót og leðja geti verið á Vesturlandsvegi við Kjalarnes vegna sjávargangs og eru vegfarendur beðnir um aka með gát.

Á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is kemur fram að hálka eða hálkublettir séu á flestum vegum á Suður- og Vesturlandi.
Þá segir að hálka eða snjóþekja sé á flestum leiðum á Vestfjörðum og krapi er á vegum í Ísafirði. Þar sem vindur er að aukast megi búast við skafrenningi víða. Búið er að laga veginn um Snæfjallaströnd en hann er einbreiður á köflum.
Vegurinn um Dynjandisheiði er ófær og verður skoðaður síðar í dag.