Tíðindi í nýrri könnun: Framsókn út af þingi

Spursmál | 22. nóvember 2024

Tíðindi í nýrri könnun: Framsókn út af þingi

Viðreisn mælist nú með mesta fylgið þegar aðeins átta dagar eru til kosninga. Samfylkingin tapar miklu fylgi á milli vikna og Framsókn mælist út af þingi.

Þetta kemur fram í nýrri könnun Prósents sem er unnin fyrir Morgunblaðið og var kynnt fyrir skömmu í Spursmálum. 

Viðreisn mælist með 22% sem er á pari við það sem flokkurinn mældist með fyrir viku síðan.

Samfylkingin tapar miklu fylgi

Samfylkingin tapar hins vegar 4,1 prósentustigi á milli vikna og mælist nú með 18,3% fylgi. Fylgismunurinn á flokkunum er þó áfram innan skekkjumarka. 

Göm­ul skrif Þórðar Snæs Júlíussonar á blogg­inu „Þess­ar elsk­ur“, sem haldið var uppi af hon­um og fé­lög­um á ár­un­um 2004-2007, voru dreg­in fram í þætti Spurs­mála á mbl.is á þriðju­dag í síðustu viku.

Í kjölfarið tilkynnti hann að hann myndi ekki þiggja þingsæti ef hann yrði kjörinn.

Flokkur fólksins stærri en Sjálfstæðisflokkurinn

Miðflokkurinn mælist með 13,5% fylgi en fyrir viku síðan mældist flokkurinn með 15,5% fylgi og tapar því tveimur prósentustigum.

Flokkur fólksins sækir í sig veðrið á milli vikna og mælist nú með 12,5% fylgi.

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með álíka mikið fylgi og fyrir viku síðan og mælist með 11,5% fylgi. 

Sósíalistar mælast inn á þingi

Athygli vekur að Píratar taka mikið stökk á milli vikna og flokkurinn mælist nú með 6,7% fylgi eftir að hafa mælst með 3,4% fylgi fyrir viku síðan. Sósíalistaflokkurinn mælist með 6,4% fylgi og næði einnig inn á þing.

Stjórnarflokkarnir Framsókn og Vinstri græn mælast hvorugir inn á þingi. Framsókn mælist með 4,4% fylgi og Vinstri græn mælast með 3% fylgi. 

Lýðræðisflokkurinn mælist með 1% fylgi. 

Hér má sjá stöðuna samkvæmt könnun Prósents.
Hér má sjá stöðuna samkvæmt könnun Prósents. mbl.is/Hallur Már
mbl.is