Yfir 14 þúsund manns kosið utan kjörfundar

Alþingiskosningar 2024 | 23. nóvember 2024

Yfir 14 þúsund manns kosið utan kjörfundar

Kjörsókn utan kjörfundar er með ágætu móti þó aðeins færri séu búnir að kjósa utan kjörfundar nú en á sama tíma fyrir forsetakosningarnar í sumar. Rúmlega 14 þúsund manns hafa þegar greitt atkvæði.

Yfir 14 þúsund manns kosið utan kjörfundar

Alþingiskosningar 2024 | 23. nóvember 2024

Þingkosningar verða haldnar á laugardaginn eftir viku.
Þingkosningar verða haldnar á laugardaginn eftir viku. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Kjörsókn utan kjörfundar er með ágætu móti þó aðeins færri séu búnir að kjósa utan kjörfundar nú en á sama tíma fyrir forsetakosningarnar í sumar. Rúmlega 14 þúsund manns hafa þegar greitt atkvæði.

Kjörsókn utan kjörfundar er með ágætu móti þó aðeins færri séu búnir að kjósa utan kjörfundar nú en á sama tíma fyrir forsetakosningarnar í sumar. Rúmlega 14 þúsund manns hafa þegar greitt atkvæði.

Þetta segir Ásdís Halla Arnardóttir, kjörstjóri hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Morgunblaðið.

Alls hafa 14.114 kosið utan kjörfundar, bæði hér á Íslandi og erlendis, og þar af hafa 7.560 kosið á höfuðborgarsvæðinu. Morgunblaðið fékk einnig tölur yfir það hversu margir hafa kosið hjá hverju sýslumannsembætti.

Athygli vekur að hátt í tvöfalt fleiri hafa kosið utan kjörfundar á Suðurlandi en á Suðurnesjum, en 817 hafa greitt atkvæði á Suðurlandi en aðeins 454 á Suðurnesjum. Í Vestmannaeyjum hafa 137 kosið utan kjörfundar.

Á Norðurlandi eystra eru 1.006 búnir að greiða atkvæði og 268 hafa kosið á Austurlandi.

Á Norðurlandi vestra eru 235 búnir að kjósa, á Vestfjörðum hafa 230 kosið og á Vesturlandi hafa 457 manns kosið.

Tæplega þrjú þúsund manns hafa greitt atkvæði utan kjörfundar erlendis.

mbl.is