Hvasst á Suðausturlandi og Austfjörðum

Veður | 24. nóvember 2024

Hvasst á Suðausturlandi og Austfjörðum

„Afar djúp lægð um 600 km norðvestur af Írlandi, olli hvassviðri og úrhellisrigningu á Bretlandseyjum í gær og mun valda norðaustan illviðri í Færeyjum í dag.“

Hvasst á Suðausturlandi og Austfjörðum

Veður | 24. nóvember 2024

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Afar djúp lægð um 600 km norðvestur af Írlandi, olli hvassviðri og úrhellisrigningu á Bretlandseyjum í gær og mun valda norðaustan illviðri í Færeyjum í dag.“

„Afar djúp lægð um 600 km norðvestur af Írlandi, olli hvassviðri og úrhellisrigningu á Bretlandseyjum í gær og mun valda norðaustan illviðri í Færeyjum í dag.“

Svo segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands, og enn fremur að við virðumst þó sleppa að mestu leyti frá lægðinni.

Þó mun ganga á með norðan strekkingi og dálitlum éljum á Norður- og Austurlandi, en yfirleitt bjartviðri í öðrum landshlutum.

Á Suðausturlandi og sunnanverðum Austfjörðum er búist við hvössum vindstrengjum ofan af jöklum og hálendinu. Þá geta skapast varasamar aðstæður fyrir ökutæki, sem taka á sig mikinn vind.

Áfram verður kalt í veðri með frosti að 9 stigum inn til landsins.

Á morgun, mánudag lægir svo og léttir til víðast hvar, en herðir heldur á frosti. Suðvestan gola eða kaldi verður annað kvöld og þykknar upp vestanlands.

Veðurvefur mbl.is.

mbl.is