Er afstaða til Gasa afgerandi fyrir stjórnarmyndun?

Ísrael/Palestína | 26. nóvember 2024

Er afstaða til Gasa afgerandi fyrir stjórnarmyndun?

Frambjóðendur sex stjórnmálaflokka sögðu Ísrael fremja þjóðarmorð á Gasa á opnum fundi um málefni Palestínu í Tjarnarbíói í gær.

Er afstaða til Gasa afgerandi fyrir stjórnarmyndun?

Ísrael/Palestína | 26. nóvember 2024

Frambjóðendur sex flokka urðu við boði Félagsins Ísland-Palestína og sátu …
Frambjóðendur sex flokka urðu við boði Félagsins Ísland-Palestína og sátu fyrir svörum varðandi málefni Palestínu. Samsett mynd/Arnór Birkisson

Frambjóðendur sex stjórnmálaflokka sögðu Ísrael fremja þjóðarmorð á Gasa á opnum fundi um málefni Palestínu í Tjarnarbíói í gær.

Frambjóðendur sex stjórnmálaflokka sögðu Ísrael fremja þjóðarmorð á Gasa á opnum fundi um málefni Palestínu í Tjarnarbíói í gær.

Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkurinn, Flokkur fólksins og Lýðræðisflokkurinn kusu ekki að verða við fundarboði félagsins Ísland-Palestína.

Þau sem sóttu fundinn voru Ásmundur Einar Daðason, fyrir Framsóknarflokkinn, Rósa Björk Brynjólfsdóttir fyrir Vinstri Græn, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fyrir Pírata, Þórunn Sveinbjarnardóttir fyrir Samfylkinguna, Karl Héðinn Kristjánsson, fyrir Sósíalistaflokkinn og Sigmar Guðmundsson, fyrir Viðreisn.

Þóra Arnórsdóttir stýrði fundinum og lagði spurningar fyrir frambjóðendur. 

Sigmar Guðmundsson, frambjóðandi Viðreisnar, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, frambjóðandi Pírata og …
Sigmar Guðmundsson, frambjóðandi Viðreisnar, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, frambjóðandi Pírata og Þórunn Sveinbjarnardóttir, frambjóðandi Samfylkingarinnar. mbl.is/Arnþór Birkisson

Ísland eigi að styðja kæru Suður-Afríku

Fyrsta spurningin kvað á um hvort Ísrael væri að fremja þjóðarmorð á Gasa og svöruðu allir frambjóðendurnir játandi.

Þá svöruðu allir frambjóðendurnir sömuleiðis að þeir teldu rétt að Ísland myndi styðja kæru Suður-Afríku á hendur Ísraelsríkis fyrir brot á sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn þjóðarmorði.

Aðspurð sagði Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, frambjóðandi Pírata, Ísland vel geta stutt við kæruna og að hægt væri að beita sér á margvíslega vegu til að sækja að Ísrael.

„Það hafa önnur ríki gert þetta og við getum lagst á sveif með þeim með því einfaldlega að vera stuðningsríki við þessa kæru,“ sagði Þórhildur og bætti við að slíkur stuðningur gæti einnig geta verið fjárhagslegur enda kostnaðarsamt að vinna að málsókninni.

Ásmundur Einar Daðason, frambjóðandi Framsóknarflokksins, Karl Héðinn Kristjánsson, fyrir Sósíalistaflokkinn, …
Ásmundur Einar Daðason, frambjóðandi Framsóknarflokksins, Karl Héðinn Kristjánsson, fyrir Sósíalistaflokkinn, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, frambjóðandi Vinstri Græn. mbl.is/Arnþór Birkisson

Hafna tvískinnungi Vesturlandanna

Spurð hvort kæmi til greina að mynda ríkisstjórn með flokkum sem myndu vilja standa í vegi fyrir því að íslensk stjórnvöld viðurkenni að þjóðarmorð eigi sér stað á Gasasvæðinu, svöruðu frambjóðendurnir allir sex neitandi.

Tók frambjóðandi Viðreisnar, Sigmar Guðmundsson, þá til máls og sagði afstöðu í þeim efnum ákveðið grundvallaratriði í afstöðu næstu ríkisstjórnar í utanríkismálum. Því hlyti það að vera eðlilegt að það kæmi fyrir í ríkisstjórnarsáttmála.

Það sé afstaða Viðreisnar að um sé að ræða þjóðarmorð og að flokkurinn styðji þá viðleitni að koma á viðskiptaþvingunum gagnvart Ísrael.

„Og við höfnum öllum þessum tvískinnungi sem er annars vegar hjá Vesturlöndunum gagnvart því sem er að gerast í Rússlandi og Úkraínu og svo því sem er að gerast í framferði Ísraelsmanna gagnvart íbúum í Palestínu og þá sérstaklega á Gasasvæðinu.“

Fyrsta spurningin kvað á um hvort Ísrael væri að fremja …
Fyrsta spurningin kvað á um hvort Ísrael væri að fremja þjóðarmorð á Gasa og svöruðu allir frambjóðendurnir játandi. mbl.is/Arnþór Birkisson

Ætlum við bara að vera eins og nasistar?

Barst talið að frumvarpi sem ísraelska þingið samþykkti nýverið sem bannar starfsemi Palestínuflóttamannaaðstoðarinnar (UNRWA) og hvort og hvernig Ísland ætti að beita sér fyrir því.

Tók Karl Héðinn Kristjánsson, frambjóðandi Sósíalista, fyrstur til máls og sagði Ísland að sjálfsögðu eiga að beita sér með öllum ráðum gegn þeim lögum sem hann lýsti sem viðbjóðslegum.

„Ætlum við bara að vera eins og nasistar í rauninni? Standa með Netanjahú, standa með Ísrael í skipulögðu þjóðarmorði, landráni? Þetta liggur allt saman fyrir og ef við ætlum að standa með alþjóðalögum og friði og mannréttindum í heiminum þá verðum við að stíga fast gegn þessu.“

Hægt er að horfa á fundinn í heild sinni hér:



mbl.is