Fjarlægja auglýsingu eftir notkun á lagi Cyrus

Alþingiskosningar 2024 | 26. nóvember 2024

Notkun á lagi eftir Miley Cyrus á „ótryggu svæði“

Samfylkingin hefur fjarlægt kosningaauglýsingu á samfélagsmiðlum þar sem flokkurinn notaði hljóðbrot úr laginu Wrecking Ball eftir bandarísku tónlistarkonuna Miley Cyrus. Ástæðan er sú notkunin „gæti verið á ótryggu svæði gagnvart höfundarrétti.“

Notkun á lagi eftir Miley Cyrus á „ótryggu svæði“

Alþingiskosningar 2024 | 26. nóvember 2024

Lagið Wrecking Ball er heimsfrægt og er með yfir milljarð …
Lagið Wrecking Ball er heimsfrægt og er með yfir milljarð hlustanir á Spotify. Samsett mynd/AFP/Getty Images/Arturo Holmes/mbl.is/Arnþór

Samfylkingin hefur fjarlægt kosningaauglýsingu á samfélagsmiðlum þar sem flokkurinn notaði hljóðbrot úr laginu Wrecking Ball eftir bandarísku tónlistarkonuna Miley Cyrus. Ástæðan er sú notkunin „gæti verið á ótryggu svæði gagnvart höfundarrétti.“

Samfylkingin hefur fjarlægt kosningaauglýsingu á samfélagsmiðlum þar sem flokkurinn notaði hljóðbrot úr laginu Wrecking Ball eftir bandarísku tónlistarkonuna Miley Cyrus. Ástæðan er sú notkunin „gæti verið á ótryggu svæði gagnvart höfundarrétti.“

Þetta segir Katrín Júlíusdóttir, kosningastjóri Samfylkingarinnar, við fyrirspurn mbl.is.

„Okkur hefur verið bent á að notkun á hljóðbroti í samfélagsmiðlaefni, þar sem fjallað er um hvernig Samfylkingin ætlar að berja niður vextina, gæti verið á ótryggu svæði gagnvart höfundarrétti sem við tökum að sjálfsögðu alvarlega og munum bregðast við í samræmi við það,“ skrifar Katrín.

Ber niður vextina með sleggju

Auglýsingin hefur verið tekin niður af samfélagsmiðlum en í henni má sjá Kristrúnu Frostadóttur, formann Samfylkingarinnar, með stóra sleggju sér í hönd þar sem hún sýnir á myndrænan hátt hvernig hún ætlar berja niður vextina.

Svo fer lagið Wrecking Ball með Miley Cyrus í gang, en í því tónlistarmyndbandi er Cyrus einmitt með stóra sleggju eins og sjá má í myndskeiðinu hér að ofan. 

„Í þessari kosningabaráttu eins og áður leggjum við okkur fram um að gæta að höfundar- og sæmdarrétti og umgangast höfunda og verk þeirra af þeirri virðingu sem þeim ber,“ skrifar Katrín.

mbl.is