Lumar einhver flokkanna tíu sem bjóða fram á landsvísu á leynivopni sem dregið verður fram þegar fjórir dagar eru eftir af kosningabaráttunni?

Það kemur í ljós í nýjasta þætti Spursmála sem sýndur var hér á mbl.is fyrr í dag.
Upptöku af þættinum má sjá í spilaranum hér að ofan og er hún öllum aðgengileg. Einnig er hægt að horfa og hlusta á þáttinn á Spotify og YouTube.
Flokkarnir keppast nú, hver um annan þveran, við að hala inn síðustu atkvæði þeirra sem ekki hafa gert upp hug sinn.
Framsókn, Píratar, Sósíalistar og VG eru allt flokkar sem eiga það á hættu annað hvort að þurrkast út af þingi eða ná ekki inn.
Þrír flokkar virðast berjast um sigurlaunin og þar virðast Samfylking og Viðreisn líklegri en Sjálfstæðisflokkurinn. Fylgi Flokks fólksins hefur verið á uppleið á meðan Miðflokkurinn hefur spilað varnarsinnaðri bolta síðustu vikurnar.
Til þess að ræða þetta í Spursmálum mættu þau til leiks, Auður Albertsdóttir, ráðgjafi hjá Strik Studio, Bergur Ebbi, rithöfundur, fyrirlesari og framtíðarfræðingur, og Andreas Örn Aðalsteinsson, yfirmaður stafrænna lausna hjá Sahara.
Ekki missa af spennandi umræðu um stjórnmálaflokkana og þær auglýsingaherferðir sem þeir hafa lagt út í til þess að vinna hylli kjósenda.