Brunagaddur á landinu í nótt

Veður | 29. nóvember 2024

Brunagaddur á landinu í nótt

Það var brunagaddur víða um landið í nótt og á mörgum stöðum mældist yfir 20 stiga frost.

Brunagaddur á landinu í nótt

Veður | 29. nóvember 2024

Á Grímsstöðum á Fjöllum fór frostið niður í 24,1 gráðu.
Á Grímsstöðum á Fjöllum fór frostið niður í 24,1 gráðu. Rax / Ragnar Axelsson

Það var brunagaddur víða um landið í nótt og á mörgum stöðum mældist yfir 20 stiga frost.

Það var brunagaddur víða um landið í nótt og á mörgum stöðum mældist yfir 20 stiga frost.

Á Grímstöðum á Fjöllum fór frostið niður í 24,1 stig, í Möðrudalnum mældist 23,6 stiga frost og á Fljótdalsheiði fór frostið niður í 22,1 gráðu.

Veðurkort Veðurstofunnar klukkan 9 í dag.
Veðurkort Veðurstofunnar klukkan 9 í dag. Kort/Veðurstofa Íslands

Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands dregur úr frosti í dag og það bætir í vind. Víða verður snjókoma í kvöld en úrkomulítið verður á Norðvestur- og Vesturlandi.

Á morgun, kosningadaginn, gengur í norðaustan 13-20 m/s og verður hvassast á Suðausturlandi. Á Austurlandi er spáð talsverðri snjókomu og skafrenningi og gæti færð spillst bæði á Austfjörðum og á Suðausturlandi.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is