Tvö tonn af kókaíni fundust inni í stálkefli á iðnaðarsvæði í borginni Bahia Blanca í Argentínu. Þetta er mesta magn eiturlyfsins sem fundist hefur í landinu í tólf ár, að sögn Patricia Bullrich, öryggismálaráðherra landsins.
Kókaínið var geymt í marglitum umbúðum, eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi.
Ekki fylgir sögunni hvort einhver hafi verið handtekinn vegna fundarins.