Skipuleggjendur mótmæla við Auschwitz voru í dag dæmdir í fangelsi. Fólkið fækkaði fötum og slátraði lambi við hliðið að útrýmingarbúðunum síðasta sumar.
„Aushwitz er táknrænn staður. Svona atburður ætti aldrei að gerast,“ sagði saksóknari.
Sex þeirra ákærðu eru Pólverjar en þá eru fjórir Hvít-Rússar og einn Þjóðverji í hópnum. Þau voru ákærð fyrir að vanhelga minnismerki og mennirnir sem drápu lambið voru dæmdir í fangelsi fyrir dýraníð.
Hinir voru dæmdir til að sinna samfélagsþjónustu eða greiða sektir. Að sögn saksóknara kynntist fólkið á netinu og skipulagði viðburðinn í gegnum samfélagsmiðla. Ekkert bendir til þess að fólkið hafi pólitískar tengingar.
„Okkur var refsað fyrir listræna tjáningu okkar. Þetta er ekki sanngjarnt,“ sagði Mikita V. en hann var annar þeirra sem þarf að dúsa í fangelsi.
Nasistar byggðu búðirnar í Auschwitz eftir að þeir hernámu Pólland í seinni heimsstyrjöldinni. Safnið í Auschwitz hefur lengi vel verið helsti minnisvarðinn um þjóðarmorð nasista á sex milljónum evrópskra gyðinga en ein milljón gyðinga var myrt í búðunum á árunum 1940 til 1945. Þá létu 100.000 aðrir lífið í búðunum. Um 232.000 þeirra sem létu lífið í Auschwitz voru börn.