Cosby treður upp á meðan hann bíður

Bill Cosby.
Bill Cosby. AFP

Leikarinn og grínistinn Bill Cosby mun kom fram á tónleikum til heiðurs jasstónlistarmanninum Tony Williams í Jazz klúbbi í Fíladelfíu á næstunni. Það verður í fyrsta skipti sem hann kemur fram frá árinu 2015 en það ár var hann ákærður fyrir kynferðisbrot.    

Árið 2015 var hann ákærður fyrir að hafa byrlað fyrrverandi körfuknattleikskonu ólyfjan og misnotað hana árið 2004. Réttarhöldum í máli hans hefur verið frestað en verður tekið fyrir aftur í mars eða apríl á þessu ári. Verði hann fundinn sekur gæti hann átt yfir höfði sér að eyða síðustu árum ævi sinnar í fangelsi. 

Cosby mun koma fram áður en málið verður tekið fyrir aftur á umræddum tónleikum þar sem hann verður með uppistand. Í tilkynningu um viðburðinn er tekið fram að miðar verði seldir við innganginn.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert