Seinheppnustu þjófar heims?

Ungu mennirnir eru frekar seinheppnir þegar kemur að innbrotum.
Ungu mennirnir eru frekar seinheppnir þegar kemur að innbrotum. Skjáskot/YouTube

Lögreglan í Shanghai hefur birt myndskeið úr eftirlitsmyndavél sem sýnir tvo unga menn reyna að brjótast inn í verslun snemma á miðvikudag. Margir telja að þarna fari heimsins seinheppnustu innbrotsþjófar.

Mennirnir sjást fyrst með múrsteina í hönd. Annar byrjar á að henda sínum steini í hurð verslunarinnar. Hinn ætlar sér að gera slíkt hið sama en ekki vill betur til en svo að steinninn hafnar í höfði félaga hans. Við þetta rotast félaginn og endar það með því að sá sem kastaði steininum í hann reynir að draga hann burt af vettvangi hins fyrirhugaða glæps.

Samkvæmt frétt BBC um málið hefur lögreglunni ekki enn tekist að bera kennsl á þjófana sem eru með hettur á höfðum sínum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert