Yfirmaður UNICEF sagði af sér

Justin Forsyth á blaðamannafundi fyrir tveimur árum.
Justin Forsyth á blaðamannafundi fyrir tveimur árum. AFP

Næstæðsti yfirmaður Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, Justin Forsyth, sagði af sér í dag vegna ásakana um óviðeigandi hegðun í garð kvenkyns starfsfólks í fyrra starfi hans sem yfirmaður bresku góðgerðarsamtakanna Save The Children.

Hann baðst afsökunar á mistökum sínum í fortíðinni og sagði að ákvörðun sín um að stíga til hliðar hefði verið tekin vegna þess að hann óttaðist að umræðan um hegðun hans myndi skaða báðar stofnanirnar.

„Ég vil hafa það á hreinu að ég er ekki að segja upp hjá UNICEF vegna mistaka sem ég gerði hjá Save The Children. Það var tekið á þeim í gegnum rétt ferli fyrir mörgum árum,“ sagði hann í yfirlýsingu.

„Ég baðst innilegrar afsökunar á þeim tíma og augliti til auglits. Ég biðst aftur afsökunar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert