Karlmaður sem hleypti af skotum við girðinguna í kringum Hvíta húsið fyrr í kvöld og særði sjálfan sig er látinn af sárum sínum en talið er að hann hafi svipt sig lífi.
Ekki er vitað hvers vegna maðurinn beindi skotvopninu að sjálfum sér en sjónarvottar segja að hann hafi fyrst skotið af byssunni inni í mannfjölda og fólk tekið til fótanna.
Donald Trump Bandaríkjaforseti var ekki í Hvíta húsinu þegar atvikið átti sér stað en hann er í sumarhúsi í Flórída-ríki. Forsetinn hefur hins vegar verið upplýstur um málið.