Ók flutningabíl inn í mannfjölda í Toronto

Flutningabíl var ekið inn í mannfjölda í miðborg Toronto fyrir …
Flutningabíl var ekið inn í mannfjölda í miðborg Toronto fyrir skömmu. Ljósmynd/Twitter

Flutningabíl var ekið inn í mannfjölda í miðbæ Toronto í Kanada um klukkan hálfsex í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu eru að minnsta kosti 10 slasaðir. Ökumaðurinn ók á brott eftir að hafa ekið á fólkið. 

Samkvæmt upplýsingum frá CBS-fréttastofunni hefur lögreglan handtekið ökumanninn. Ekki liggur fyrir hvort um hryðjuverk hafi verið að ræða. 

BBC greinir frá því að hvítum flutningabíl hafi verið ekið inn í mannfjölda á gatnamótum við Yonge Street og Finch Avenue klukkan hálftvö að staðartíma, eða klukkan hálfsex að íslenskum tíma. 

Lögreglan hefur beðið almenning um að halda sig fjarri svæðinu. Neðanjarðarlestarstöðvum í grenndinni hefur verið lokað. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert