Meinað að leita meðferðar í Vatíkaninu

For­eldr­um Alfie Evans, tæp­lega tveggja ára gam­als drengs sem er …
For­eldr­um Alfie Evans, tæp­lega tveggja ára gam­als drengs sem er með ban­væn­an sjúk­dóm, hefur verið meinað af breskum dómstól að fljúga með son sinn til Vatíkansins til að leita læknismeðferðar. Ljósmynd/Twitter

Dómstóll í Bretlandi hefur úrskurðað að for­eldr­ar Alfie Evans, tæp­lega tveggja ára gam­als drengs sem er með ban­væn­an sjúk­dóm, megi ekki fljúga með son sinn til Vatíkansins til að leita læknismeðferðar.

Þetta er fimmta dómsmálið sem foreldrarnir, Tom Evans og Kate James, tapa á stuttum tíma, en í gær hafnaði Hæstirétt­ur Bret­lands áfrýj­un for­eldranna um að því yrði frestað að slökkva á önd­un­ar­vél drengs­ins á meðan leitað yrði nýrra leiða til þess að bjarga lífi hans.

Al­fie er 23 mánaða gam­all og þjá­ist af afar sjald­gæf­um tauga­hrörn­un­ar­sjúk­dómi sem veld­ur því að hann fær ít­rekaða krampa. Al­fie hef­ur verið í dái í eitt ár og hef­ur verið haldið á lífi með aðstoð önd­un­ar­vél­ar.

Slökkt var á önd­un­ar­vél­inni í gær­kvöldi. Faðir hans greindi frá því í dag að lækn­arnir hafa verið „furðu lostna“ þegar son­ur hans hóf að anda af sjálfs­dáðum er slökkt hafði verið á önd­un­ar­vél­inni.

Frétt mbl.is: Andar enn án öndunarvélar

Í umfjöllun The Guardian segir að í dómsúrskurðinum sem var kveðinn upp síðdegis er vísað í orð lækna Evans sem segja að ekki sé hægt að veita honum frekari meðferð, en drengurinn hefur verið í dái í eitt ár.

For­eldr­ar hans vilja fara með hann á Bamb­ino Gesu-sjúkra­húsið í Róm en sjúkra­húsið er rekið af Páfag­arði. Evans átti fund með Frans páfa á miðviku­dag­inn þar sem hann bað páfa um að bjarga lífi drengs­ins. Síðar sama dag talaði páfi um að Guð væri sá eini sem réði för þegar kæmi að lífi. Ítölsk stjórnvöld voru reiðubúin að veita Alfie ítalskan ríkisborgararétt svo að hann gæti hafið meðferð í Róm .

Dómarinn lagði til að Alfie verði fluttur af Alder Hey-barna­sjúkra­húsinu í Li­verpool þar sem hann hefur dvalið síðast árið og á friðsælli stað, hvort sem það væri á heimili foreldranna eða annars staðar, þar sem hann gæti eytt síðustu dögum sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert