Gekkst undir nýrnaaðgerð

Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna.
Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna. AFP

Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, liggur á sjúkrahúsi eftir að hafa gengist undir nýrnaaðgerð.

Að sögn Stephanie Grisham, upplýsingafulltrúa í Hvíta húsinu, gekk aðgerðin prýðilega og engin vandræði komu upp.

Reiknað er með að Melanie, sem er 48 ára, muni liggja á sjúkrahúsi það sem eftir er vikunnar.  

Trump-hjónin.
Trump-hjónin. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert