Melania Trump aftur í Hvíta húsið

Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna.
Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna. AFP

Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, sneri aftur í Hvíta húsið í dag eftir hafa gengist undir nýrnaaðgerð.

Að sögn Donalds Trump Bandaríkjaforseta er hún á góðum batavegi.

„Frábært að okkar ótrúlega forsetafrú sé komin aftur í Hvíta húsið,“ sagði hann á Twitter.

„Melania líður vel og er á góðum batavegi. Takk fyrir allar bænirnar og batakveðjurnar!“

Forsetafrúin gekkst undir nýrnaaðgerðina á mánudaginn. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert