Mikill áhugi er fyrir leiðtogafundi þeirra Donald Trumps Bandaríkjaforseta og Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu, sem hefst klukkann eitt í nótt að íslenskum tíma. Þetta verður í fyrsta skipti í sögunni sem leiðtogar ríkjanna tveggja hittast og hvíla augu heimsbyggðarinnar nú á eyjunni Sentosa, vinsælum ferðamannastað í Singapúr, þar sem leiðtogarnir munu hittast.
Trump virtist bjartsýnn er hann tjáði sig um fundinn á Twitter snemma á þriðjudagsmorgun að staðartíma. Sagði hann undirbúninginn fyrir fundinn ganga „hratt og vel“.
„Við munum öll komast fljótt að því hvort að raunverulegst samkomulag, ólíkt hinum fyrri, geti náðst,“ sagði Trump á Twitter og gagnrýndi því næst „lúsera og hatara“ sem líti á fundinn sem varasama eftirkjöf við Kim.
Benti Trump máli sínu til stuðnings á að yfirvöld í Norður-Kóreu hafi nýleg látið þrjá bandaríska gísla lausa og að þau hafi heitið því að láta af frekari kjarnavopnaárásum. „Þessir spekingar sem hafa frá upphafi sagt mig hafa á röngu að standa hafa ekkert eftir að segja!,“ sagði hann.
„Þetta mun ganga vel“.
Hvíta húsið staðfesti á mánudag að þeir Trump og Kim verði einir á fundinum til að byrja með og að einungis túlkar þeirra viðstaddir. Embættismenn beggja ríkjanna munu svo snæða með þeim hádegisverð.
Trump yfirgefur Singapúr strax að fundi loknum á morgun og Kim heldur síðan heim til Norður-Kóreu síðar um daginn.
Mikil spenna hefur lengi verið í samskiptum Bandaríkjanna og Norður Kóreu og fór hún vaxandi eftir að Trump tók við embætti. Þar til nýlega hefði því verið talið óhugsandi að þeir Trump og Kim ættu eftir að funda nú í sumar.
Trump hefur áður sagt viðræðurnar vera einstakt tækifæri til að koma á friði, en bandarísk stjórnvöld vonast til að með viðræðunum takist að hefja ferli sem muni leiða til afvopnavæðingar kjarnavopna á Kóreuskaga.
Sérfræðingar í málefnum Norður-Kóreu hafa þó varað við bjartsýni í þeim efnum og benda á að ráðamenn ríkjanna leggi mögulega mismunandi skilning í skilgreiningu á afvopnun kjarnavopna.
Á mánudag sagði Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, að Bandaríkin væru tilbúin að bjóða „einstakt“ loforð um öryggisráðstafanir ef Norður-Kóra samþykkti að hefja eyðingu kjarnavopna landsins. Ekki verði annað tekið í mál en að Norðu-Kórea losi sig alveg við kjarnavopn.