Þrjár sækjast eftir skólameistarastöðum

Neskaupstaður í Fjarðabyggð.
Neskaupstaður í Fjarðabyggð.

Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Framhaldsskólann á Húsavík og Verkmenntaskóla Austurlands rann út þann 11. júní. Tvær sóttust eftir stöðu skólameistara á Húsavík en ein á Neskaupstað.

Þær Herdís Þ. Sigurðardóttir, settur skólameistari, og Valgerður Gunnarsdóttir skólameistari sóttust eftir stöðunni við Framhaldsskólann á Húsavík. Mennta- og menningarmálaráðuneytinu barst ein umsókn um stöðu skólameistara við Verkmenntaskóla Austurlands frá Lilju Guðnýju Jóhannesdóttur framhaldsskólakennara.

Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í embættið til fimm ára frá og með 1. ágúst næstkomandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert