Karlmaður var skotinn til bana í sænsku borginni Malmö í kvöld. Lögreglunni barst tilkynning um skotárás í hverfinu Lindängen um klukkan tíu að staðartíma, eða klukkan átta að íslenskum tíma.
Maðurinn, sem er 24 ára, var fluttur með einkabíl á spítala. Lögregluvakt er á spítalanum. Sydsvenskan greindi fyrst frá láti mannsins og hefur sænska ríkisútvarpið staðfest að maðurinn var skotinn til bana.
Þrír karlmenn létu lífið í skotárás í borginni á mánudag. Ekki hefur fengist staðfest að árásirnar tvær tengist með beinum hætti en talið er að árásin tengist átökum glæpagengja í borginni.
Leit að árásarmanninum stendur yfir og hefur lögregla lokað svæðinu þar sem árásin átti sér stað, í nágrenni við Lindängsplan. Tæknideild lögreglu er á vettvangi.
Fréttin hefur verið uppfærð.