Horst Seehofer, innanríkisráðherra Þýskalands, hyggst segja af sér, bæði sem ráðherra og sem leiðtogi CSU, flokks kristilegra demókrata í Bæjaralandi, í kjölfar deilna hans við Angelu Merkel Þýsklandskanslara um innflytjendamál.
Þetta hefur AFP-fréttaveitan eftir heimildarmönnum.
Fólksflutningar hælisleitenda innan sambandsins hafa verið eitur í beinum Seehofer og ágreiningur milli hans og Merkel um þá höfðu nýlega telft framtíð ríkisstjórnar hennar í tvísýnu.
Seehofer hafði gefið Merkel frest til 1. júlí til þess að marka stefnu í málinu ásamt öðrum Evrópuleiðtogum en annars sagst munu fara þvert á stefnu hennar og vísa burt innflytjendum sem skráðir hafa verið hjá öðrum Evrópuríkjum við þýsku landamærin.
Greint var frá því í gær, að Merkel hefði lagt fram hugmyndir um aðgerðir til að takmarka flæði flóttamanna til landsins. Þetta kom fram í skjali sem ætlað er samstarfsflokkum hennar í ríkisstjórn. Lagt er til að hælisleitendur sem koma til Þýskalands eftir að hafa fyrst verið skráðir í öðru ríki verði færðir til lokaðra miðstöðva á borð við þeirra sem samið var um á leiðtogafundinum.