Að minnsta 30 voru myrtir í árás sem gerð var á nokkur þorp í norðvesturhluta Nígeríu. Fólk á svæðinu hefur áður krafist þess að Muhammadu Buhari, forseti Nígeríu, sendi aukinn fjölda lögreglu og herliðs út í þær sveitir landsins sem liggja að landamærum Zamfara-fylkis.
Vopnaðir menn á mótorhjólum myrtu fólk í fimm þorpum sem liggja að landamærum Zamfara í gær en mennirnir skutu í allar áttir og fóru ránshendi um þorpin.
„Sjö manneskjur voru myrtar í Sakkida, fjórar í Farin Zare, átta í Orawa, sjö í Gyadde and fjórar í Sabon Gari,“ sagði Jabbi Labbo, leiðtogi í Gyadde.
Sjö er saknað og er talið að fólkið hafi drukknað í vatni í grenndinni þar sem það reyndi að flýja.
Í byrjun maí myrti hópur árásarmanna 51 á sama landsvæði.