Tilraun til mannráns í Stokkhólmi

Stokkhólmur.
Stokkhólmur. Wikipedia/David Gubler

Þrír menn voru handteknir í nótt vegna mannránstilraunar í Bromma í Stokkhólmi. Samkvæmt fréttum sænskra fjölmiðla komust mennirnir inn í íbúð með því að klifra upp á svalir. Talið er að þeir hafi verið vopnaðir byssum.

Lögreglan í Stokkhólmi er sögð hafa handsamað mennina skömmu eftir að tilkynning um mannránstilraunina barst.

Sænska ríkisútvarpið greinir frá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert