Hvað varð um Fan Bingbing?

Fan Bingbing.
Fan Bingbing. Af Wikipedia

Hún hefur ekki sést opinberlega frá 1. júlí er hún heimsótti barnaspítala. Þá er engin hreyfing á síðu hennar á samfélagsmiðlinum Sina Weibo þar sem um 62 milljónir aðdáenda hennar fylgja henni. Þessi sami hópur spyr nú: Hvað hefur orðið um Fan Bingbing, eina skærustu stjörnu Kínverja og eina tekjuhæstu leikkonu heims?

Mikið er nú fjallað um hið meinta hvarf leikkonunnar í kínverskum fjölmiðlum. Í maí sakaði sjónvarpsmaðurinn Cui Yongyuan Fan um skattsvik. Kvikmyndaver leikkonunnar hefur harðneitað að nokkuð slíkt hafi átt sér stað. Þá vilja talsmenn kvikmyndaversins ekki tjá sig um hvar hún er nú niðurkomin. En þessar ásakanir hafa sett mikinn kraft í margvíslegar samsæriskenningar um meint hvarf leikkonunnar.

Fan er þekkt fyrirsæta og söngkona. Hún kom m.a. fram í X-Men-kvikmyndunum. Hún hefur lengi verið mjög virk á samfélagsmiðlum og nýtur mikillar hylli meðal aðdáenda sinna. Því þykir mörgum dularfullt að ekkert heyrist nú frá henni á þeim vettvangi. Hún setti síðast inn færslu á Weibo 2. júní og nú hafa margir aðdáendur hennar skilið þar eftir skilaboð og biðja hana vinsamlega að láta vita af sér.

Frétt BBC

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert