Rúta og olíuflutningabíll rákust saman

18 eru látnir og 25 slasaðir, þar af níu alvarlega, …
18 eru látnir og 25 slasaðir, þar af níu alvarlega, eftir að rúta og olíuflutningabíll rákust saman í norðvesturhluta Pakistan. Ljósmynd/Twitter

Að minnsta kosti 18 eru látnir og 25 slasaðir eftir að rúta og olíuflutningabíll rákust saman í norðvesturhluta Pakistan í morgun.

Rútan var á leið til hafnarborgarinnar Karachi í suðurhluta Pakistan þegar áreksturinn átti sér stað, nálægt borginni Kohat. 48 farþegar voru í rútunni. Olíuflutningabíllinn var fullur af olíu en ekki kviknaði í honum við slysið.

Að sögn lögreglu átti slysið sér stað á einbreiðum vegi. Áverkar níu hinna 25 sem slösuðust eru alvarlegir. Rannsókn á tildrögum slyssins standa yfir.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert