Dómari í Bandaríkjunum hefur fengið líflátshótanir eftir að hann lét fimm manns sem handteknir voru í niðurgröfnum búðum í Nýju-Mexíkó lausa gegn tryggingu, að því er BBC greinir frá. Lögregla bjargaði ellefu vannærðum börnum í búðunum, sem voru hálfgert greni, og þar fannst einnig lík fjögurra ára drengs sem sagt er vera af syni eins mannanna.
Fimmmenningarnir voru handteknir eftir að lögregla gerði húsleit í búðunum vegna gruns um að þriggja ára dreng, Abdul-Ghani Wahhaj, væri þar að finna. Hann var ekki meðal barnanna 11 sem var bjargað úr búðunum, en síðar fann lögregla líkamsleifar ungs drengs sem sagðar eru vera af honum.
Faðir Abdul-Ghani, Siraj Wahhaj, er grunaður um að hafa rænt drengnum af heimili móður hans í Georgíu í desember á síðasta ári.
Wahhaj var handtekinn á staðnum ásamt þeim Lucas Morten, Jany Leveille, Hujhrah Wahhaj og Subhannah Wahhaj. Fullyrðir saksóknari að fimmmenningarnir séu hættulegir og hafi ekki átt að fá lausn gegn tryggingu. Þeir hafi þjálfað börnin í að nota vopn og til að standa að skotárásum á skóla.
Dómari taldi saksóknara hins vegar ekki hafa fært næg rök fyrir því að almenningi stafaði ógn af fimmmenningunum og lét þá lausa gegn tryggingu. Öllum fimm er gert að vera undir rafrænu eftirliti og vera vikulega í sambandi við lögfræðing sinn.
Úrskurður dómarans, Söruh Backus, hefur hins vegar valdið miklum usla og hefur BBC eftir talsmanni dómstólsins í Nýju-Mexíkó að hann „óskaði þess að hún yrði skorin á háls“. Annar innhringjandi sagðist „vona að einhver kæmi og mölvaði höfuð hennar“.
Þá var Backus sökuð um að vera stuðningsmaður íslamskra hryðjuverkamanna í tölvupósti sem henni barst.
Fullyrða lögfræðingar fimmmenninganna að þeir sæti óréttlátri meðferð hjá saksóknaraembættinu af því að þeir eru múslimar. Því hafnar saksóknari hins vegar alfarið.
Dómshúsið í Taos var rýmt um tíma eftir að hótanirnar bárust.