Depardieu sakaður um nauðgun

Franski leikarinn Gerard Depardieu.
Franski leikarinn Gerard Depardieu. AFP

Ung leikkona hefur sakað franska leikarann Gerard Depardieu um nauðgun og kynferðislegt ofbeldi.

Depardieu vísar ásökununum „algjörlega“ á bug, að sögn AFP-fréttastofunnar.

Saksóknaraembættið í París er byrjað að rannsaka ásakanirnar eftir að kæra var lögð fram á mánudaginn.

Depardieu, sem er 69 ára, er einn þekktasti leikari Frakka. Hann hefur leikið í myndum á borð við Cyrano de Bergerac og Jean de Florette.

Leikkonan sem um ræðir er 22 ára gömul. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert