Sýrland kennir Ísrael einnig um óhappið

Rússnesk flugvél var skotin niður í misgripum á mánudag.
Rússnesk flugvél var skotin niður í misgripum á mánudag. AFP

Bashar al-Assad Sýrlandsforseti hefur sakað Ísrael um að granda rússneskri flugvél, sem var skotin niður fyrir mistök þegar sýrlenski herinn reyndi að koma í veg fyrir loftárásir frá Ísraelsmönnum. Rússar höfðu áður lýst því yfir að þeir kenndu Ísraelsmönnum um.

Forsetinn sagði atvikið hafa verið afar óheppilegt. Það hafi verið afleiðing af hroka og siðspillingu Ísraels, á sama tíma og hann vottaði Rússum samúð sína vegna málsins í dag. Fimmtán fórust þegar rússneska flugvélin var skotin niður á mánudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert