Trump hótar harðri refsingu

Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Donald Trump Bandaríkjaforseti. AFP

Donald Trump heitir þeim sem voru að baki morðinu á sádiarabíska blaðamanninum Jamal Khashoggi harðri refsingu. 

„Við ætlum okkur að komast til botns í þessu máli og það verður hörð refsing,“ sagði Trump í þættinum 60 minutes á CBS-sjónvarpsstöðinni sem birt var í dag.

„Í augnablikinu neita þeir því og neita því ákaft. Gætu  það hafa verið þeir? Já,“ sagði Trump og vísaði þar til þess stjórnvöld í Sádi-Arabíu hafa harðneitað því að hafa átt þátt í hvarfi blaðamannsins og meintu morði hans. 

Blaðamaðurinn fór inn á ræðismannaskrifstofu Sádi-Arabíu í Tyrklandi í byrjun mánaðarins og snéri ekki aftur. Tyrknesk yfirvöld segja að hann hafi verið myrtur þar og kenningar eru um að lík hans hafi verið brytjað niður.

Viðtalið við Trump í heild verður sýnt í sjónvarpsþættinum annað kvöld.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert