Máli Stormy Daniels vísað frá

Samsett mynd af Stormy Daniels og Trump.
Samsett mynd af Stormy Daniels og Trump. AFP

Alríkisdómari hefur vísað frá meiðyrðamáli klámmyndaleikkonunnar Stormy Daniels gegn Donald Trump Bandaríkjaforseta.

Daniels höfðaði mál gegn Trump eftir að hann sakaði hana um blekkingar í tísti á Twitter.

Dómarinn sagði að forsetinn njóti málfrelsis og hafi verið í rétti þegar hann lét ummælin falla, að sögn CNN.

Daniels segir að hún og Trump hafi átt í ástarsambandi árið 2006, skömmu eftir að hann kvæntist Melaniu Trump forsetafrú og þau eignuðust saman soninn Barron.

Trump hefur vísað því á bug að hafa átt í ástarsambandi við Daniels.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert