Fellibylurinn Willa, sem nálgast vesturströnd Mexíkó, er nú skilgreindur sem þriðja stigs fellibylur. Búist er við að fellibylurinn valdi miklu tjóni er hann kemur að landi í nótt eða á morgun og gæti jafnvel orðið lífshættulegur. Þúsundir íbúa og ferðamanna hafa verið flutt fjær ströndinni.
Fellibylurinn er nú um 100 kílómetra frá landi, sunnan við borgina Mazatlan, sem er vinsæll áfangastaður ferðamanna í Sinaloa-fylki. Búist er við að stormurinn komi að landi í nágrenni við staðinn um miðnætti að staðartíma og þar búa margir íbúar sig undir það versta.
„Ég er viss um að það flæðir inn í húsið mitt,“ sagði háskólaprófessorinn Ignacio Osuna í samtali við Reuters og bætti við að stórir hlutar borgarinnar væru undir sjávarmáli.
Búist er við því að allt að 450 millimetrar af regni geti fallið á svæðum þar sem áhrifa fellibylsins gætir, samkvæmt veðurstofunni í Mexíkó. Það gæti valdið skyndiflóðum og lífshættulegum skriðum.
Ríkisstjórinn í Nayarit, Antono Echevarria, segir að meira en 10.000 manns þurfi að yfirgefa heimili sín við ströndina og að skólar yrðu lokaðir á morgun. Hann varar heimamenn við því að bjóða storminum birginn.
„Látum ekki eins og ofurhetjur. Þetta er mjög öflugur fellibylur, mjög máttugur, og við viljum enga harmleiki.“